Fara í efni  

Jólagjöf til starfsmanna Akraneskaupstaðar - gjafabréf

Akraneskaupstaður auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf kaupstaðarins til starfsmanna sveitarfélagsins.

Fyrirkomulaginu verður með sama hætti og um síðustu jól, það er að starfsmenn fá gjafabréf ásamt upptalningu á fyrirtækjum á Akranesi sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin á tímabilinu frá 1. desember 2023 – 28. febrúar 2024.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að fyrirtækið sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi á Akranesi.

Um er að ræða um 800 gjafabréf sem afhent verða starfsmönnum í byrjun desember 2023.

Áhugasamir skrá sig til leiks með því að senda tölvupóst harpa@akranes.is

Skráningafrestur er til og með 20. nóvember n.k.

Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Harpa Hallsdóttir, mannauðsstjóri Akraneskaupstaðar, á netfanginu harpa@akranes.is eða í síma 433-1000


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00