Fara í efni  

Jakob Svavar kjörinn Íþróttamaður ársins 2019 á þrettándanum

Jakob Svavar Sigurðsson var kjörinn Íþróttamaður Akraness í annað sinn þann 6. janúar síðastliðinn. Jakob Svavar hefur um langt árabil verið einn af bestu íþróttaknöpum á landinu og unnið marga íslandsmeistaratitla auk heimsmeistaratitils. Hann hefur einnig hlotið mörg verðlaun fyrir góða reiðmennsku og prúðmennsku. Jakob Svavar er í landsliðshóp LH en hann skipa 19 afreksknapar í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis og erlendis. Hann er efstur á heimslista (World Ranking) FEIF (alþjóðasamtök íslenska hestsins)  í tölti. Á árinu 2019 sigraði Jakob m.a. í einstaklingskeppni meistaradeildarinnar í hestaíþróttum með því að verða í fyrsta sæti í fimmgang, fyrsta sæti í tölti, fyrsta sæti í slaktaumatölti og í þriðja sæti í fjórgang.

Í öðru sæti í kjörinu varð Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur sem hefur hampað titlinum oftast allra eða í 7 skipti og í þriðja sæti varð Alexander Örn Kárason kraftlyftingamaður.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00