Fara í efni  

Írskir dagar – skilaboð til foreldra

Akraneskaupstaður og SAMAN-hópurinn hvetja foreldra og forsjáraðila til að nýta Írska daga til að njóta samveru samveru með börnum sínum og unglingum.

Mikilvægt er að fylgjast með hvar börnin okkar eru og með hverjum, vita hver plön þeirra eru um helgina og leiðbeina þeim.

Á hátíðum sem þessum skapast oft vettvangur fyrir áfengisneyslu ungmenna. Samkvæmt íslenskum lögum er óheimilt að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem eru yngri en 20 ára. Foreldrar ættu því ekki að kaupa áfengi fyrir ungmenni eða samþykkja áfengisneyslu þeirra heima eða annars staðar.

Útivistarreglur barna yfir sumartímann:

12 ára og yngri: heim fyrir kl. 22:00
13–16 ára: heim fyrir kl. 24:00

Börn mega ekki vera á almannafæri utan þess tíma nema í fylgd með fullorðnum.

Stöndum saman um að setja skýr mörk og munum einnig eftir því að vera góðar fyrirmyndir. Gerum helgina sem ánægjulegasta fyrir alla!

Akraneskaupstaður og SAMAN-hópurinn


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu