Fara í efni  

Írskir dagar hefjast á fimmtudaginn

Írskir dagar verða haldnir hátíðlegir í 18 sinn dagana 29. júní til 2. júlí næstkomandi. Hátíðin hefur fest sig í sessi í gegnum árin og er einn af hápunktum sumarsins á Akranesi. Dagskráin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár enda fjölmargir viðburðir orðnir fastir liðir hjá íbúum sem og gestum. Líkt og önnur ár eru keppnir eins og rauðhærðasti Íslendingurinn og best skreytta húsið eða írskasta húsið og í verðlaun í báðum flokkum eru ferðir fyrir tvo til Írlands í boði Gaman ferða. 

Hér má nálgast dagskrá hátíðarinnar - Góða skemmtun!


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00