Fara í efni  

Innritun í leikskóla haustið 2021 og sumarleyfi leikskólanna

Samþykkt var á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs þann 2. febrúar 2021 að börnum sem eru fædd frá 1. júní 2019 - 31. maí 2020 verði boðið leikskólapláss á komandi skólaári.

Innritun mun fara fram fyrstu vikuna í mars og hvetjum við alla sem eiga eftir að sækja um leikskólapláss fyrir barnið sitt að fara inn á íbúagáttina og skila inn umsókn. Tilkynning mun birtast hér heimasíðu Akraneskaupstaðar þegar innritun hefur farið fram.

Á fundinum var einnig ákveðið að sumarleyfi leikskólanna sumarið 2021 verði fjórar vikur. Leikskólarnir leggi fram tillögu að lokunartíma eftir framkvæmd skoðanakönnunar meðal foreldra og að höfðu samráði við starfsmenn leikskólans.

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00