Fara í efni  

Innritun í grunnskóla skólaárið 2018-2019

Innritun barna í grunnskóla á Akranesi sem hefja skólagöngu næstkomandi haust er nú lokið. Í íbúagátt Akraneskaupstaðar, www.ibuagatt.akranes.is, geta forráðamenn nálgast tilkynningu þess efnis. Hægt er skrá sig inn í íbúagáttina með rafrænum skilríkum eða íslykli. Forráðamenn velja þegar innskráningu lýkur yfirflokk sem kallast málin mín, þar ætti innritunarmál barnsins að birtast efst. Sé ýtt á málsnúmer sem er í fyrsta dálk, er hægt að nálgast umrædda tilkynningu sem og einnig senda inn fyrirspurn, vakni upp einhverjar spurningar. Bréfin verða aðeins aðgengileg með þessum hætti en sé þess óskað að fá þau send á tölvupósti er hægt að senda beiðni um það á netfangið akranes@akranes.is og muna skal eftir að tilgreina fullt nafn barnsins. Hvað varðar skráningu í frístund, þá fer hún fram í vor og verður sérstaklega auglýst þegar nær dregur. 

Lögheimili nemenda ræður því í hvaða grunnskóla þeir eiga námsvist. Akranesi er skipt í tvö svæði sem tilheyra annars vegar Brekkubæjarskóla og hins vegar Grundaskóla. Mörkin milli svæðanna liggja um Þjóðbraut og Faxabraut. Skóla- og frístundasvið innritar nemendur sem eru að hefja nám í grunnskóla í þann grunnskóla sem tilheyrir viðkomandi nemanda í samræmi við búsetu. Foreldrum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir við þá innritun og er hún metin í samvinnu við foreldra. Foreldrar nemenda sem hefja nám í öðrum bekkjum innrita börn sín hjá riturum grunnskólanna í samræmi við skólahverfi. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00