Innritun í grunnskóla fyrir haustið 2020 er lokið
Innritun barna í grunnskóla á Akranesi sem hefja skólagöngu næstkomandi haust er nú lokið og foreldrar hafa fengið tilkynningu þess efnis með tölvupósti. Alls eru 116 barn að innritast í grunnskólana í haust.
Hvað varðar skráningu í frístund, þá verður opnað fyrir umsóknir inn á þjónustugátt Akraneskaupstaðar 1. maí og þurfa umsóknir að hafa borist fyrir 1. júní til að eiga tryggt pláss á því frístundaheimili sem sótt er um.
Lögheimili nemenda ræður því í hvaða grunnskóla þeir eiga námsvist. Akranesi er skipt í tvö svæði sem tilheyra annars vegar Brekkubæjarskóla og hins vegar Grundaskóla. Mörkin milli svæðanna liggja um Þjóðbraut og Faxabraut. Skóla- og frístundasvið innritar nemendur sem eru að hefja nám í grunnskóla í þann grunnskóla sem tilheyrir viðkomandi nemanda í samræmi við búsetu. Foreldrum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir við þá innritun og er hún metin í samvinnu við foreldra. Foreldrar nemenda sem hefja nám í öðrum bekkjum innrita börn sín hjá riturum grunnskólanna í samræmi við skólahverfi.
Fréttasafn
- 2025
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
 - 2024
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2023

 - 2022

 - 2021

 - 2020

 - 2019

 - 2018

 - 2017

 - 2016

 - 2015