Fara í efni  

Íbúaþing um atvinnulíf á Akranesi

Íbúaþing um atvinnulíf á Akranesi
- Uppbygging á Breið og nágrenni -
22. janúar 2020

Akraneskaupstaður efnir til íbúaþings þar sem atvinnulíf á Akranesi verður til umræðu. Markmið þingsins er að fá íbúa og fyrirtækjaeigendur að borði og ræða uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi með sérstakri áherslu á Breið og nágrenni, í samstarfi við Brim og fleiri fyrirtæki. Metnaður bæjarins er að byggja upp öflugt atvinnulíf á Akranesi í góðu samstarfi fyrirtækja, félagasamtaka, stofnana og íbúa.

Fundarstjóri verður Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og með honum verða Steinþór Pálsson og Sævar Kristinsson frá KPMG. Á fundinum verða kynntar nýjar sviðsmyndir um framtíð atvinnulífs á Vesturlandi. Í kjölfarið verða ræddir ólíkir valkostir um uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi með áherslu á Breið og nágrenni. Boðið verður upp á súpu og brauð.

Þingið verður haldið á Garðavöllum, frístundahúsi Golfklúbbsins Leynis, miðvikudaginn 22. janúar 2020 frá kl. 18:00-20:00. Til að áætla fjölda og undirbúa veitingar er óskað eftir tímanlegri skráningu á www.akranes.is/ibuathing 

Hvetjum alla til að mæta og hafa áhrif!


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00