Hvalfjarðargöng – lokanir um hvítasunnuhelgi og áætluð verklok
Hvítasunnuhelgin er mikil ferðahelgi og því mikilvægt að ferðalangar viti af lokun Hvalfjarðarganga vegna framkvæmda við nýja lýsingu.
Lokanir:
- Frá klukkan 21:30 fimmtudaginn 21. maí til klukkan 6:00 á föstudagsmorgun
- Frá klukkan 21:30 sunnudaginn 24. maí til klukkan 6:00 á mánudagsmorgun
- Frá klukkan 21:30 mánudaginn 25. maí til klukkan 6:00 á þriðjudagsmorgun
Opnanir:
- Aðfaranótt laugardags
- Aðfaranótt sunnudags
Framkvæmdir hafa staðið yfir í Hvalfjarðargöngum frá 7. apríl síðastliðnum. Unnið er að endurnýjun á öllum lýsingarbúnaði ganganna sem hefur verið í notkun frá því að göngin voru opnuð árið 1998.
Upphafleg verklok voru áætluð 29. maí og stefnir allt í að sú tímaáætlun muni standast, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Verkið er því á áætlun og í byrjun vikunnar var búið að taka niður 85% af gömlum strengjum. Þetta er mikið magn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Þá er unnið að ýmsum öðrum verkefnum, eins og að setja upp stiga og ljós í útskotum, draga strengi og tengja, vinna í töflurýmum og uppsetningu fleiri vinnuljósa.
Í þessari viku verður lokið við að taka niður gömlu ljósin og strengina og haldið áfram með vinnu á stigum, í útskotum og við töflur í tæknirýmum ásamt ýmsu fleiru.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015