Húsnæðisuppbygging á Akranesi í takt við íbúðaþörf
Akraneskaupstaður hefur staðið vel að húsnæðisuppbyggingu undanfarin ár og verið í samræmi við íbúðaþörf samkvæmt nýrri samantekt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga árið 2025.
Í samantektinni er áætluð íbúðaþörf hvers sveitarfélags borin saman við áætlaða lóðaúthlutun, íbúðauppbyggingu og fólksfjölgun. Í henni kemur fram að uppbygging íbúðarhúsnæðis á Akranesi hafi verið í takt við þá nýju íbúðaþörf sem myndaðist á árinu 2025. Þá sýna tölur fyrir tímabilið 2023 til 2025 að alls hafi verið byggðar 302 íbúðir í sveitarfélaginu, á meðan áætluð þörf hafi verið á bilinu 220 til 306 íbúðir. Stofnunin telur því að sveitarfélagið hafi náð að mæta húsnæðisþörf síðustu ára með markvissri uppbyggingu. Sjá má uppbyggingu í takt við mat HMS á íbúðaþörf á mynd hér að neðan.
Einnig kemur fram að Akraneskaupstaður hafi tryggt nægilegt framboð byggingarhæfra lóða til framtíðaruppbyggingar. Í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins eru tilgreindar byggingarhæfar lóðir fyrir 238 íbúðir árið 2026. Akraneskaupstaður gerir ráð fyrir að árleg ný íbúðaþörf verði á bilinu 83 til 104 íbúðir á tímabilinu 2025 til 2034. Því hefur sveitarfélagið útvegað nægilega margar byggingarhæfar lóðir til þess að mæta íbúðaþörf samkvæmt eigin mati.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015