Fara í efni  

Hunda- og kattahreinsun 2020

Við vekjum athygli á að samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega.

Gunnar Gauti Gunnarsson dýrlæknir annast hreinsunina og er ormahreinsun hunda og katta innifalin í leyfisgjaldi

Ormahreinsunin mun fara fram í þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin)

Hundahreinsun verður frá mánudaginn 26. október frá kl. 13 - 20

Kattahreinsun verður þriðjudaginn 27. október frá kl. 13 - 20

Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. greiða þarf með peningum)

  • Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári, verð kr. 3.000
  • Örmerking hunda og katta, verð kr. 4.500
  • Ófrjósemissprauta í hunda og ketti, verð kr. 3.000 - 7.000 (fer eftir þyngd)
  • Bólusetning gegn kattafári, verð kr. 4.000

Seinni hreinsun verður laugardaginn 7. nóvember

Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898 9478 eða dýralæknir í síma 892 3230

Vinsamlegast athugið!

Vegna hertra sóttvarnaraðgerða verður grímuskylda og biðjum við fólk að virða 2 metra fjarlægðarmörk.

Passað verður upp á fjöldatakmarkanir.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00