Fara í efni  

Hunda- og kattaeigendur athugið

Seinni hunda- og kattahreinsun verður laugardaginn 2. nóvember í þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin). Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina. Kattahreinsun verður frá kl. 9.00 til 12.00 Hundahreinsun verður frá kl. 13.00 til 15.00.

Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. greiða þarf með peningum):

  • Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólga, hótelhósti og
  • hundafár, verð kr. 3.000. Örmerking hunda og katta, verð kr. 4.500.
  • Perlutex ófrjósemistöflur í hunda og ketti, verð kr. 1.500 (uppselt)
  • Bólusetning gegn kattafári, verð kr. 3.000.

Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra nálgast skráningargögn á staðnum. Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00