Fara í efni  

Hunda- og kattaeigendur athugið

Laugardaginn 4. nóvember næstkomandi verður seinni hunda- og kattahreinsun í þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin). Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina. Hundahreinsun verður frá kl. 9:00-12:00 og kattahreinsun verður frá kl. 13:00-15:30.

Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. að greiða þarf með peningum):

  • Bólusetningu við Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári, verð kr. 3.000.
  • Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500.
  • Perlutex ófrjósemistöflur fyrir hunda og ketti, verð kr. 1.500.
  • Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 3.000.

Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra nálgast skráningargögn á staðnum. Dýraeigendur hunda og katta eru hvattir til að kynna sér samþykktir um hunda- og kattahald á Akranesi á vef Akraneskaupstaðar.

Nánari upplýsingar veita dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00