Hunda- og kattaeigendur athugið
Mánudaginn 17. október og miðvikudaginn 19. október næstkomandi verður hunda- og kattahreinsun í þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin). Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina. Athugið að kattahreinsun verður frá kl. 17:00-21:00, mánudaginn 17. október og hundahreinsun verður frá kl. 17:00-21:00, miðvikudaginn 19. október.
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. að greiða þarf með peningum):
- Bólusetningu við Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta, hundafári og kattafári, verð kr. 3.000.
 - Ófrjósemissprautu, verð kr. 2.500 - 4.000.
 - Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500.
 - Perlutex ófrjósemistöflur fyrir hunda og ketti, verð kr. 2.000.
 
Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra nálgast skráningargögn á staðnum. Dýraeigendur hunda og katta eru hvattir til að kynna sér samþykktir um hunda- og kattahald á Akranesi á vef Akraneskaupstaðar. Seinni hreinsun verður laugardaginn 5. nóvember, nánar auglýst síðar.
Nánari upplýsingar veita dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230.
Fréttasafn
- 2025
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
 - 2024
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2023

 - 2022

 - 2021

 - 2020

 - 2019

 - 2018

 - 2017

 - 2016

 - 2015