Fara í efni  

Hópmyndum unglinga á leiksvæðum að kvöldlagi

Samhæfingarmiðstöð almannavarna sendir út tilmæli til foreldra en borið hefur verið á því að hópmyndun unglinga á leiksvæðum að kvöldlagi hefur verið að aukast. Ástæðan er líklega gott veður og jákvæðar fréttir sem hafa verið að berast um þróun mála hjá okkur í baráttunni við COVID-19. Hinsvegar þarf áfram að fylgja eftir smitvörnum og reglum sem eru í gildi og mikilvægt að halda fókus og sofna ekki á verðinum.

Akraneskaupstaður tekur undir þetta og hvetur foreldra til vitundar um að við verðum öll að halda áfram að fara eftir fyrirmælum og sporna gegn allri hópmyndun.

 

 .


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu