Fara í efni  

Hljóðfærakynning í Tónlistarskólanum á Akranesi í dag 23. maí

Hljóðfærakynning í Tónlistarskólanum á Akranesi verður í dag þann 23. maí frá kl. 16-18. Allir eru velkomnir í skólann að kynna sér þau hljóðfæri sem kennt er á í Tónlistarskólanum, hitta kennara skólans og fræðast um hljóðfærin og jafnvel fá að prófa þau. Kynnt verða m.a. strengjahljóðfæri,  ýmis blásturshljóðfæri, píanó, gítar og trommur svo það helsta sé nefnt.

Vakin er athygli á því að nú stendur yfir skráning nemenda í Tónlistarskólann fyrir næsta skólaár á heimasíðu skólans toska.is. Skráningin stendur til 1. júní.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00