Fara í efni  

Heilsueflandi samfélags spilastokkur í gjöf til íbúa Akraneskaupstaðar

Nú ættu einhverjir að verða orðnir varir við að spilastokkur hafi komið inn um bréfalúguna hjá sér. Heilsueflandi samfélag Akranes gefur öllum bæjarbúum spilastokk en verkefnið er að hluta til styrkt úr Lýðheilsusjóð. Ungir sem aldnir geta alltaf gripið í spil og til eru margir skemmtilegir spilaleikir. Hægt er að eiga gæðastundir með fjölskyldunni en það er markmið gjafarinnar. Einnig er auðvelt að kippa spilastokk með sér og taka hann með sér í ferðalög, í sumarbústaðinn eða í heimsókn til vina.

Hér eru uppástungur um skemmtileg spil og inn í sviganum er tilgreint hæfilegan fjölda þátttakenda í hverju spili. 

  • Veiðimaður (2-5)
  • Þjófur (2)
  • Ólsen ólsen (2-5)
  • Ólsen Ólsen upp og niður (2-5)
  • Spilaborg (1-2)
  • Langavitleysa (2)
  • Svarti Pétur (2-10)
  • Vist (4)
  • Rommí (2-6)
  • Skítakall (2+)
  • Hæ Gosi (2)
  • Kani (4)
  • Kleppari (2)
  • Lauma (4-10)
  • Kóngur úti í horni (2)

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00