Fara í efni  

Haraldur Benediktsson nýr bæjarstjóri Akraneskaupstaðar

Oddvitar allra flokka í bæjarstjórn Akraness ásamt Haraldi. Frá vinstri: Valgarður L. Jónsson, Haral…
Oddvitar allra flokka í bæjarstjórn Akraness ásamt Haraldi. Frá vinstri: Valgarður L. Jónsson, Haraldur Benediktsson, Líf Lárusdóttir og Ragnar B. Sæmundsson.

Haraldur Benediktsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar.

Haraldur hefur síðastliðin 10 ár verið alþingismaður fyrir Norð-Vesturkjördæmi, þá hefur hann m.a. setið í atvinnuveganefnd, fjárlaganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Hann hefur verið stjórnarformaður Orkusjóðs og veitt stjórn Fjarskiptasjóðs formennsku á síðastliðnum árum. Haraldur hefur að auki verið formaður fjölda nefnda og stýrihópa á vegum stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands.

„Haraldur hefur þekkingu og reynslu sem við bæjarfulltrúar erum fullviss um að muni nýtast vel í starfi bæjarstjóra, Akraneskaupstað og samfélaginu hér á Akranesi til heilla. Alger einhugur ríkir í bæjarstjórn um ráðningu Haralds og við erum þess fullviss að hann muni veita bæjarfélaginu öfluga forystu á áframhaldandi uppgangstímum bæjarins,“ segir Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness.

Haraldur segir Akranes vera eitt mest spennandi sveitarfélag landsins og það sé sannarlega heiður að vera trúað fyrir starfi bæjarstjóra. „Ég hlakka til að takast á við verkefnin með öflugum hópi bæjarstjórnar og starfsmanna Akraneskaupstaðar.“

Bæjarstjórn Akraness hlakkar til samstarfsins við Harald en hann mun hefja störf á næstu vikum.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00