Fara í efni  

Guðný rauðhærðasti Íslendingurinn 2026

Guðný Sverrisdóttir kom alla leið frá Hólmavík og sigraði í keppninni.
Guðný Sverrisdóttir kom alla leið frá Hólmavík og sigraði í keppninni.

Írskir dagar náðu hápunkti í gær í rjómablíðu þegar hátt í tíu þúsund gestir fylltu brekkuna við íþróttavöllinn í árlegum brekkusöng sem þeir Hreimur Örn Heimisson og Magni Ásgeirsson stýrðu.

Tónlistarhátíðin Lopapeysan tók við í beinu framhaldi af brekkusöngnum, en þar skemmtu um 5 þúsund gestir sér við undirleik margra af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Allt fór afar vel fram.

„Ég er í skýjunum með þessa hátíð og hvað allt gekk vel,“ segir Hjörvar Gunnarsson skipuleggjandi Írskra daga. „Þeir á Lopapeysunni eru að gera frábæra hluti og samstarf við alla viðbragðsaðila gekk eins og í sögu.“

Þetta er í 27. sinn sem Írskir dagar eru haldnir, en einn af föstum liðum hátíðarinnar er keppnin um titilinn Rauðhærðasti Íslendingurinn enda státa Írar af hæsta hlutfalli rauðhærðra í heiminum. Það var Guðný Sverrisdóttir frá Hólmavík sem sigraði í keppninni að þessu sinni, en 22 keppendur voru skráðir til leiks. Í dómnefnd sátu Ísabella Rós sigurvegari síðasta árs og móðir hennar Andrea Ýr Arnarsdóttir fyrrverandi oddviti Hvalfjarðarsveitar, en mæðgurnar eru báðar rauðhærðar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu