Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í grasslátt á opnum svæðum í sveitarfélaginu. EES útboð nr. 74814-2026.

Um er að ræða grasslátt bæði með og án hirðingar í þrjú sumur, til 30. október 2028. Þjónustusvæði er samtals 340.000 fermetrar.

Útboðsgögn eru eingöngu aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef fyrir kl. 11 þriðjudaginn 10. mars 2026. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.