Fara í efni  

Götur sópaðar á næstunni

Nú styttist í sumarið og á næstunni mun verktaki á vegum kaupstaðarins sjá um að sópa götur bæjarins eftir veturinn. 

Starfsmenn stefna á að hefjast handa þann 23. apríl, á sumardaginn fyrsta, en reiknað er með að verkið í heild taki um viku. Bænum hefur verið skipt upp í þrjú svæði, samanber meðfylgjandi mynd. Fyrst munu götur á bláa svæðinu verða sópaðar, svo rauða og loks því gula. 

Íbúar og bílaeigendur eru beðnir um að vera meðvitaðir um þetta og það væri vel þegið ef þeir gætu fært bílana sína af götunum svo hægt sé að hreinsa sem mest og best.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu