Fara í efni  

Götulokanir 3.júlí vegna málningarvinnu

Akraneskaupstaður fagnar fjölbreytileikanum og hvetur bæjarbúa til að byrgja sig upp af regnbogavarn…
Akraneskaupstaður fagnar fjölbreytileikanum og hvetur bæjarbúa til að byrgja sig upp af regnbogavarning til að skreyta Vesturland í öllum regnbogans litum!

Það gleður okkur að tilkynna að Akraneskaupstaður ætlar að fagna fjölbreytileikanum og skreyta bæinn með regnbogafánagötu í tilefni af Hinsegin hátíð Vesturlands 2023. 

Verður fáninn málaður frá gangbrautinni fyrir utan Kirkjubraut 11 að gangbrautinni við Skólabraut 35, stefnt er á að hefja vinnuna snemma og ljúka henni eins fljótt og hægt er. Stærtó mun halda áfram að keyra "Írsku daga leiðina" á meðan þessu stendur, Sjá upplýsingar hér.

Við viljum biðja fólk að aka ekki bílunum sínum inn á svæðið, það getur skapað hættu fyrir þau sem sinna málningarvinnunni. Eins biðjum við þau sem ganga um svæðið á meðan málningarvinnu stendur að ganga ekki inn á regnbogann fyrr en hann er orðinn þurr. 

Biðjumst við afsökunar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda íbúum.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00