Fara í efni  

Golfleikjanámskeið 2018

Golfleikjanámskeið 

Golfleikjanámskeiðið er ætlað öllum stelpum og strákum á aldrinum 6 til 10 ára (2008 til 2012). Markmið Golfleikjanámskeiðsins er að taka á móti stelpum og strákum sem vilja kynna sér íþróttina og ná árangri í golfi. Áherslan verður á golftengda og almenna leiki, og gott og skemmtilegt golf leikjanámskeið þar sem krakkarnir öðlast færni sem gerir þau að betri kylfingum. 

Kennt verður á æfingasvæðum GL og litla Garðavellinum sem er 6 holu par 3 völlur. 

  • Hægt er að fá lánaðan búnað á meðan á námskeiðinu stendur. 
  • Allir sem ljúka námskeiðinu verða skráðir í GL þeim að kostnaðarlausu. 
  • Námskeiðunum lýkur með pylsuveislu og viðurkenningarskjali frá GL. 
  • Námskeiðið stendur yfir frá  kl. 9:00 -12:00 og koma börn með nesti með sér. 

Námskeið:

  • 1. námskeið 11. - 15. júní
  • 2. námskeið 18. - 22. júní
  • 3. námskeið 25. - 29. júní
  • 4. námskeið 2. - 6. júlí
  • Frí á golf leikjanámskeiðum 9. - 13. júlí
  • 5. námskeið 16. - 20. júlí
  • Frí á golf leikjanámskeiðum 23. júlí til 3. ágúst
  • 6. námskeið 7. - 10. ágúst
  • 7. námskeið 13. - 17. ágúst

Gjaldskrá:

  • 4 daga námskeið 4.000 kr.
  • 5 daga námskeið 5.000 kr.
  • Greiða þarf áður en námskeið hefst.

Skráning og greiðslufyrirkomulag

Skráning fer fram hér í Nóra en einnig er hægt að ganga frá skráningu með tölvupósti á leynir@leynir.is.

Skráning hefst 23. maí.

Golfklúbburinn Leynir - Garðavöllur

S: 431-2711

leynir@leynir.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00