Fara í efni  

Góð aðsókn á nýja grunnsýningu á Byggðasafninu í Görðum

Góð aðsókn hefur verið á nýja grunnsýningu á Byggðasafninu í Görðum í sumar. Allnokkuð hefur verið um heimsóknir hópa frá ýmsum skólum, ferðamannahópar, bæði erlendir og innlendir.

Sýningin hefur ekki síður vakið mikla lukku hjá yngri kynslóðinni að sögn Finnbjörns , starfsmanns á Byggðasafninu og hefur ratleikur um safnið leikið lykilhlutverk í heimsókn barnanna. Öll börn eru velkomin á safnið og þau sem vilja geta tekið þátt í ratleiknum og unnið sér inn verðlaun að leik loknum.

Hljóðleiðsögn er ný viðbót á safninu og gefur hún gestum tækifæri á því að fara á eigin hraða í gegnum sýninguna, einnig gefur hún gestum einstaka innsýn í liðna tíma þar sem þjóðþekktir leikarar lesa upp upplýsingar ásamt leikinni frásögn fólks á fyrri tímum.


Gestir safnsins fá afhent símtól, vísvegar um safnið eru svo númer sem slegin
eru inn á tækið og þá er hægt að hlusta á upplýsingar um það sem fyrir augu ber. 

 
Við hvetjum heimamenn sem og aðra til þess að gera sér glaðan dag og líta við á Byggðasafninu í Görðum



 

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00