Glæsileg lokahátíð upplestrarkeppni Grunnskólanna
Mennta- og menningarsvið Akraneskaupstaðar bauð til glæsilegrar lokahátíðar þegar upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fór fram í Tónbergi miðvikudaginn 18. mars 2026.
Við athöfnina lásu 12 nemendur í 7. bekk Brekkubæjarskóla og Grundaskóla upp úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson og valin ljóð um fugla í íslenskri náttúru, sex þátttakendur úr hvorum skóla. Formlegur undirbúningur nemenda fyrir keppnina hófst í kringum Dag íslenskrar tungu. Undankeppnir voru síðan haldnar í hvorum skóla þar sem sex fulltrúar úr hvorum skóla voru valdir til að taka þátt í lokahátíðinni.
Aldís Ylfa Heimisdóttir opnaði hátíðina. Nemendur úr Tónlistarskóla Akraness, sem einnig eru í 7. bekk, fluttu skemmtileg tónlistaratriði við mikinn fögnuð gesta.
Keppnin var afar jöfn í ár og áttu dómarar kvöldsins, þau Hallbera Jóhannesdóttir, Jakob Þór Einarsson og Þóra Grímsdóttir, áttu sannarlega erfitt val fyrir höndum.
Að lokum komst dómnefndin að niðurstöðu og voru tveir framúrskarandi upplesarar valdir þau: Gunnar Kristian Arnarsson Wessman frá Brekkubæjarskóla og Laufey Svanbergsdóttir frá Grundaskóla. Sigurvegarar fengu í verðlaun peningagjöf og bókina Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur. Upplesarar kvöldsins fengu einnig bókagjöf og þeir sem komu að undirbúningi keppninnar hlutu þakkir fyrir sitt framlag. Þá voru veitt verðlaun fyrir teiknisamkeppni vegna boðskorts á Upplestrarkeppnina.
Innilegar hamingjuóskir til allra þeirra sem tóku þátt í keppninni.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015