Fara í efni  

Gagnlegar upplýsingar um kosningarnar á Akranesi

Hér má finna allar helstu upplýsingar um komandi kosningar til bæjarstjórnar á Akranesi á morgun, laugardaginn 16. maí. Neðst á síðunni er að finna yfirlit yfir framboðslista og frambjóðendur, raðað í stafrófsröð eftir listabókstaf.

Kjörstaður: Grundaskóli, Espigrund 1, 300 Akranesi.

Kjörfundur þann 16. maí kl. 09.00 til kl. 22.00.

Fjöldi kjördeilda: Kjördeildir verða fjórar, líkt og undanfarin ár.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Akranesi er hjá sýslumanninum á Vesturlandi, Kirkjubraut 28 og er opið þar mánudaga–fimmtudaga kl. 09.00-15.00 og föstudaga kl. 09.00-14.00.

Móttaka utankjörfundaratkvæða: Tekið er á móti atkvæðum á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar, Dalbraut 4. Skrifstofan er opin frá kl. 9.00-12.00 í dag, föstudag. Einnig er unnt að skila utankjörfundaratkvæðum á Dalbraut 1 til 17.00 í dag, föstudag, en eftir lokun kl. 12.00 þarf að hafa samband við Steinar Adolfsson í síma 899-9180.

Talning atkvæða fer fram í Grundaskóla og er opin almenningi á skilgreindu áhorfendasvæði. Eiginleg talning atkvæða hefst að loknum kjörfundi kl. 22.00.

Yfirkjörstjórn Akraness/Akraneskaupstaðar:

  • Einar Gunnar Einarsson, formaður, sími: 894-2946
  • Björn Kjartansson, aðalmaður, sími: 898-2929
  • Geir Guðjónsson, aðalmaður, sími: 698-1036

 

Framboðslistar og frambjóðendur

B - Framsókn og frjálsir

  1. Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi
  2. Liv Aase Skarstad, bæjarfulltrúi
  3. Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, framkvæmdastjóri
  4. Karl Jóhann Haagensen, sérfræðingur
  5. Aníta Eir Einarsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur
  6. Elín Theódóra Reynisdóttir, félagsráðgjafi
  7. Björgvin Viktor Færseth, fulltrúi hjá kærunefnd útlendingamála
  8. Erla Edvardsdóttir, forstöðumaður
  9. Magni Grétarsson, byggingartæknifræðingur
  10. Erla Björg Kristjánsdóttir, stjórnandi í velferðarþjónustu
  11. Freyr Líndal Sævarsson, framkvæmdastjóri
  12. Adriana Monika Malczyk, starfsmaður Norðuráls
  13. Áslaug Guðmundsdóttir, kennari
  14. Jóhannes Geir Guðnason, rekstrarstjóri
  15. Íris Petra Jónsdóttir, háskólanemi
  16. Þröstur Karlsson, vélstjóri
  17. Elsa Lára Arnardóttir, skólastjóri
  18. Hlöðver Sigurðsson, fyrrum útgerðarmaður

 

C – Viðreisn

  1. Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur
  2. Helga Björg Þrastardóttir, matreiðslumeistari
  3. Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri
  4. Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona
  5. Guðmundur Claxton, tölvunarfræðingur
  6. Tinna Steindórsdóttir, grunnskólakennari og sálfræðinemi
  7. Ellert Hjelm Gestsson, verslunarmaður
  8. Aldís Ylfa Heimisdóttir, verkefnastjóri og knattspyrnuþjálfari
  9. Alexander Aron Guðjónsson, framkvæmdastjóri
  10. Hugrún Eva Valdimarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  11. Drífa Dröfn Siggerðardóttir, verslunareigandi
  12. Sigfús Agnar Jónsson, vélfræðingur og vaktstjóri
  13. Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri umbóta
  14. Ýmir Hjálmsson, háskólanemi
  15. Elírós Kjaran Zar, kvikmyndagerðarkona
  16. Jóhannes Finnur Halldórsson, eldri borgari
  17. Edit Ómarsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjaþjónusta og varaþingmaður

 

D – Sjálfstæðisflokkurinn

  1. Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi
  2. Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri
  3. Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögreglumaður og bæjarfulltrúi
  4. Viktor Elvar Viktorsson, húsasmiður
  5. Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur
  6. Emil Kristmann Sævarsson, framkvæmdastjóri
  7. Ísak Örn Elvarsson, viðskiptastjóri
  8. Erla Karlsdóttir, aðalbókari
  9. Rúnar Freyr Ágústsson, verkefnastjóri fjárfestingarverkefna
  10. Þura Björk Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
  11. Stefán Orri Ólafsson, lögfræðingur
  12. Anna Þóra Hannesdóttir, kennaranemi
  13. Ásta María Búadóttir, viðskiptafræðinemi
  14. Sigurjón Jósef Magnússon, tónlistarmaður
  15. Tjörvi Guðjónsson, fjármálastjóri
  16. Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur
  17. Guðný Jóna Ólafsdóttir, verkefnastjóri
  18. Ólafur Guðmundur Adolfsson, alþingismaður

 

M – Miðflokkurinn

  1. Hrafn Ágúst Björnsson, öryggisráðgjafi
  2. Guðríður Þorbjörnsdóttir, stjórnsýslufræðingur
  3. Ólafur Rúnar Sigurðsson, sölu- og innkaupafulltrúi
  4. Hörður Svavarsson, rafvirkjameistari
  5. Aníta Hauksdóttir, framleiðsluplönun hjá Norðuráli
  6. Finney Aníta Thelmudóttir, lögfræðingur
  7. Tómas Sjöberg Kjartansson, eigandi/rekstrarstjóri Kölski
  8. Elly Sandra Ingvarsdóttir, sölumaður Norðanfiski
  9. Gerald Brimir Einarsson, stöðvarstjóri og þjálfari
  10. Hermann Unnarsson, atvinnuflugmaður og söluráðgjafi
  11. Ágúst Snær Þorsteinsson, pípulagningamaður
  12. Valdimar Þorvaldsson, bifreiðastjóri
  13. Steindór Mar Gunnarsson, nemi og starfsmaður Elkem
  14. Guðmundur Jóhann Steindórsson, verkefnastjóri
  15. Helga Kristín Haug Jónsdóttir, vélsmiður
  16. Emin Kadri, athafnamaður
  17. Jón Jónsson, verkamaður
  18. Óli Jón Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri

 

S – Samfylkingin

  1. Sigurður Vopni Vatnsdal, ráðgjafi
  2. Jónína Margrét Sigmundsdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður í stuðningi við fólk með áfengis- og fíknivanda
  3. Kristinn Hallur Sveinsson, bæjarfulltrúi og sérfræðingur hjá Loftmyndum ehf.
  4. Anna Sólveig Smáradóttir, sjúkraþjálfari og varabæjarfulltrúi
  5. Jón Hjörvar Valgarðsson, umsjónarmaður Arnardals og nemi við HÍ
  6. Katrín Valdís Hjartardóttir, svæðisstjóri æskulýðsmála í Vesturlandsprófastsdæmi
  7. Björn Guðmundsson, húsasmiður og varabæjarfulltrúi
  8. Þóranna Hildur Kjartansdóttir, sjúkraliði
  9. Gunnþórunn Valsdóttir, leikskólakennari
  10. Örn Arnarson, grunnskólakennari
  11. Margrét Bjarnadóttir, tannfræðingur
  12. Ásbjörn Þór Ásbjörnsson, viðskipta- og markaðsfræðingur
  13. Agla Harðardóttir, sérfræðingur í gagnaþróun hjá Kviku Banka hf.
  14. Elvar Sigurjónsson, starfsmaður Ölgerðarinnar
  15. Gunnhildur Björnsdóttir, grunnskólakennari og leiðsagnarkennari
  16. Bjarni Vésteinsson, byggingafræðingur
  17. Ásta Egilsdóttir, kennari
  18. Valgarður Lyngdal Jónsson, bæjarfulltrúi og kennari

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu