Fara í efni  

Fyrsta skóflustungan tekin á byggingu nýs íbúðarkjarna á Asparskógum

Frá skóflustungunni í morgun.
Frá skóflustungunni í morgun.

Fyrsta skóflustungan á byggingu nýs íbúðarkjarna á Asparskógum á Akranesi var tekin kl. 10 í morgun þann 4. október. Það er Bjarg íbúðafélag sem byggir 33 leiguíbúðir á svæðinu og er reiknað með að afhending til leigutaka verði í tvennu lagi eða þann 1. júní og 1. júlí 2019. Akraneskaupstaður fær átta íbúðir til ráðstöfunar í íbúðarkjarnanum. 

Modulus munu sjá um byggingu húsanna og arkitekt er Svava Björg Jónsdóttir. Hagsýni, skynsemi og gæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna til að halda leiguverði lágu og er þar m.a. horft til fermetrafjölda. Um verður að ræða 40,4 fermetra stúdíóíbúðir, 52 fermetra tveggja herbergja íbúðir, 77 fermetra þriggja herbergja íbúðir og 93 fermetra fjögurra herbergja íbúðir.

Félagið er nú þegar með tæplega 238 íbúðir í byggingu og um 430 í hönnunarferli en þegar hafa verið veitt framlög til Bjargs vegna uppbyggingar á 668 íbúðum í Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi, Akureyri, Þorlákshöfn og Sandgerði. Þá hefur Bjarg átt í viðræðum við fleiri sveitarfélög um uppbyggingu en félagið stefnir á uppbyggingu um 1400 leiguíbúða á næstu fjórum árum. Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðirnar í Asparskógum verða því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn á Akranesi. 

„Ánægjulegt sé að vita að umsóknir séu orðnar 81 talsins um húsnæði við Asparskóga á Akranesi og það er greinilegt að vel er tekið í þennan nýja búsetukost. Ég hvet þá sem hafa áhuga að nýta sér tækifærið og sækja um á meðan þessi valmöguleiki er fyrir hendi" er haft eftir Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra á Akranesi. 

Opið er fyrir umsóknir og skráningu á biðlista hjá Bjargi á heimasíðu félagsins, www.bjargibudafelag.is. 

Um Bjarg 
Bjarg er húsnæðis sjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða leiguheimili að norrænni fyrirmynd sem standa munu til boða þeim félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ og BSRB sem hafa verið fullgildir félagsmenn s.l. 24 mánuði miðað við úthlutun og eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00