Fara í efni  

Fyrsta skóflustunga tekin vegna uppbyggingu Leigufélags aldraða við Dalbraut 6

Frá vinstri: Ólafur Örn Ingólfsson formaður stjórnar Leigufélag aldraðra hses, 
Valgarður Lyngdal J…
Frá vinstri: Ólafur Örn Ingólfsson formaður stjórnar Leigufélag aldraðra hses, Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar og oddviti samfylkingar, Ólafur Adolfsson bæjarfulltrúi sjálfstæðisflokksins, Elsa Lára Arnardóttir formaður bæjarráðs og oddviti framsóknar og frjálsra, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Bragi Þórðarsson heiðursborgari Akraness. Mynd fengin frá Skessuhorni/mm.

Í dag þann 20. apríl 2021 var tekin fyrsta skóflustunga að 31 íbúð ásamt bílakjallara sem Leigufélag aldraðra hses byggir að Dalbraut 6. Um er að ræða 22 tveggja herbergja íbúðir og 9 þriggja herbergja íbúðir. Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar til leigu á þriðja ársfjórðungi 2022.

Leigufélag aldraðra er húsnæðissjálfseignarstofnun sem byggir hagkvæmar íbúðir til leigu fyrir eldri borgara og starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir. Lögin gera ráð fyrir bæði hagkvæmni í byggingu en einnig stofnframlögum frá ríki og sveitarfélagi til að leiga verði hagstæðari en ella. Lögin gera einnig ráð fyrir ákveðnum viðmiðunum í tekjum og eignum hjá væntanlegum leigjendum.

Samstarf Leigufélagsins og Akraneskaupstaðar við undirbúning þessa verkefnis hefur verið mjög gott. Stjórnendur bæjarins hafa frá byrjun lagt áherslu á að heimamenn kæmu sem mest að framkvæmdum og Leigufélagið hefur kappkostað að verða við þeim óskum. Nefna má nokkra aðila af staðnum sem taka þátt. Alhönnun, Snókur, BMVallá, Rafpró og Ylur eru fyrirtæki sem nú þegar hefur verið samið við en líklegt er að fleiri bætist í hópinn.

Þá má einnig geta þess að Leigufélagið er að hefja byggingu á 51 íbúð við Vatnsholt 1-3 í Reykjavík en þar koma við sögu aðilar af Akranesi. Samtals hefur Leigufélagið samið við fyrirtæki og iðnaðarmenn frá Akranesi í þessum tveimur verkum fyrir hátt í 2 milljarða króna.

Með þessari uppbyggingu er tekið enn eitt skrefið í aðgerðum Akraneskaupstaðar til viðspyrnu vegna Covid-19 faraldursins sem samþykktar voru af bæjarstjórn í apríl 2020. Nú erum við að sjá í þessu eina verkefni hátt í tvo milljarða þar sem rúmur helmingur þeirrar fjárhæðar skilar sér í atvinnu á Akranesi. Jafnframt er ánægjulegt að sjá þá miklu uppbyggingu sem á sér stað á Akranesi en nú eru ríflega 400 íbúðir fyrir kaupenda- eða leigjendamarkað í byggingu eða að fara í byggingu á lóðum sem hefur verið úthlutað síðustu mánuði og misseri. Þó langstærsti hluti þessa íbúða sé á kaupendamarkaði þá er ánægjulegt að sjá að Leigufélag aldraða sjái tækifæri í að byggja á Akranesi þar sem fólk getur verið í leiguhúsnæði án þess að þurfa að óttast að vera sagt upp leigunni. segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.

Við hjá Leigufélagi aldraðra hses þökkum sérstaklega gott og árangursríkt samstarf við stjórnendur bæjarins sem hafa kappkostað að afgreiða öll mál hratt og fagmannlega. Ef frekari verkefni væru í boði myndum við með mikilli ánægju taka þátt í þeim.segir Ólafur Örn Ingólfsson formaður stjórnar Leigufélag aldraðra hses.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00