Fyrirhugaðar breytingar á grenndarstöðvum
Grenndarstöðvar við Byggðasafnið í Görðum og Bíóhöllina verða fjarlægðar og stöðin við Dalbraut bætt með aukinni þjónustu, lýsingu, myndavélavöktun og veggeiningum ef nýjar hugmyndir þess efnis ná fram að ganga.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti nýlega á fundi sínum að fela umhverfisstjóra að vinna málið áfram, sem er á frumstigi. Fyrirhuguð stækkun við Dalbraut er vel afmörkuð og áhersla lögð á að bæta þá aðstöðu sem fyrir er með tilliti til bæði notenda og íbúa í kring.
Í dag eru grenndarstöðvar á þessum þremur stöðum í bænum og gámarnir samtals þrettán. Stöðvarnar voru settar upp til bráðabirgða og eru afmarkaðar með færanlegum veggjum. Umgengni í kringum þær hefur á stundum verið ábótavant og pappírsgámar hafa fyllst fljótt.
Kostirnir við þessa nýju tilhögun eru til að mynda að:
🔵 Svæðið verður girt af á allar hliðar, með veggeiningunum.
🔵 Gámar og umferð við gámana er afgirt frá næstu húsum.
🔵 Sett verður upp lýsing á svæðið sem bætir aðstöðu, umgengni og er forvörn við lausu rusli.
🔵 Settar verður upp myndavélar, sem forvörn við lausu rusli og íkveikju í gámum.
🔵 Leiðbeiningaskilti verða bætt utan við inngang.
🔵 Kostur er á betri umhirðu á stöðinni.
🔵 Hægt er að koma fyrir fleiri pappagámum, fólk kemur síður að fullum gámum og þarf því síður að leita á aðra staði eða freistast til að setja á jörðina.
🔵 Þar skápast pláss til að bæta við fleiri úrgangsflokkum.
Sem fyrr segir er málið á frumstigi, en vonir standa til að hægt verði að vinna það fljótt og vel.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015