Fara í efni  

Framtíðarsýn fyrir Ægisbraut kynnt á miðvikudag

Þrjár hönnunarstofur hafa nú lokið við að vinna frumtillögur að framtíðarsýn fyrir Ægisbraut, en tillögurnar verða kynntar fyrir bæjarbúum á fundi á miðvikudag. Fundurinn verður haldinn í sal Grundaskóla kl. 17.
Stofurnar þrjár eru Basalt, Hjark og Tark.

Það var skipulags- og umhverfisráð sem fékk stofurnar til að vinna tillögurnar, en samkvæmt gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarbyggðar, leikskóla og opins svæðis við Ægisbraut.

Stofurnar fengu sex vikur til að klára tillögurnar, en markmiðið var að móta heildstæða sýn fyrir svæðið með áherslu á:

  • aðgengi og tengingar
  • náttúru og staðaranda
  • nýja íbúðarbyggð
  • 8–10 deilda leikskóla
  • tengsl við núverandi byggð og skólasvæði

Gert er ráð fyrir að nýr leikskóli rísi á lóðinni við Vesturgötu 119, gegnt Brekkubæjarskóla.

Tillögurnar eru fyrst og fremst hugmyndalegs eðlis og ætlaðar til að skapa umræðu, kanna mismunandi nálganir og leggja faglegt mat á möguleika og áskoranir svæðisins. Sérstök áhersla var lögð á íbúðaruppbyggingu, sjóvarnir, leik- og grunnskóla og tengingu við nærumhverfið.

Tillögurnar máttu vera framsæknar, svo lengi sem þær væru raunhæfar, vel rökstuddar og í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og sérstöðu svæðisins.

Öll áhugasöm eru hvött til að mæta og kynna sér framtíðarsýnina fyrir Ægisbraut.

Viðburðurinn á Facebook


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu