Fara í efni  

Framtíðarsýn ferðamála á Vesturlandi - opnir súpufundir

Hvernig vilt þú sjá framtíðarþróun ferðamála á þínu svæði?
Opnir súpufundir um framtíðarsýn ferðamála á Vesturlandi verða haldnir núna í nóvember:

  • 20. nóv. Opinn fundur fyrir Dalabyggð - haldinn í Dalabúð í Búðardal
  • 23. nóv. Opinn fundur fyrir Snæfellsnes - haldinn á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi
  • 28. nóv. Opinn fundur fyrir Borgarbyggð og Skorradalshrepp - haldinn í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri
  • 29. nóv. Opinn fundur fyrir Akranes og Hvalfjarðarsveit - haldinn í Garðakaffi, Byggðasafninu í Görðum.

Fundirnir eru frá kl. 17:00 til 20:00 og hvetjum við Skagamenn til þess að vera með og leggja sitt af mörkum í stefnumótun ferðamála á Vesturlandi. Skráning fer fram hér!

Tilurð þessa súpufunda kemur til vegna undirbúningsvinnu fyrir DMP – Destination Management Plan eða áfangastaðaáætlanir DMP á landsvísu, en unnið út frá landssvæðum. DMP er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þar með talið þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis. DMP áætlanir verða unnar í hverjum landshluta fyrir sig og svo sameinað í eina heildar stefnumarkandi stjórnunaráætlun í ferðamálum fyrir Ísland. Hægt er að lesa nánar um DMP verkefnið hér. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00