Fara í efni  

Framkvæmdir við Asparskóga og Beykiskóga

Fljótlega eftir páskahátíðina er áætlað að hefja lagnavinnu í Skógarhverfi vegna nýrra lóða norðan við Asparskóga. Veitur munu leggja nýjar lagnir vegna hita-, vatns-, frá- og rafveitu að þessum lóðum. 

Akraneskaupstaður mun samhliða þessum framkvæmdum jarðvegsskipta undir bílastæðum og gangstígum norðan Asparskóga. Gert er ráð fyrir að þessum framkvæmdum verði lokið í júlí 2020.

Á meðan framkvæmdum stendur má gera ráð fyrir aukinni umferð vinnuvéla og öðru raski. Viðeigandi merkingar verða settar upp á framkvæmdasvæðinu vegna lokanna á verktíma

Íbúar í Skógarhverfi mega búast við rekstrartruflunum í veitukerfum á verktíma og verða upplýstir um þær hverju sinni. Yfirlitsmynd af framkvæmdasvæðinu má sjá hér að ofan.

  • Verkefnastjóri verksins hjá Veitum er Helgi Helgason. Verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað er Jón Ólafsson.
  • Tengiliður framkvæmdar er Bergsteinn Metúsalemsson hjá verkfræðistofunni Mannvit, sími 422 3000
  • Verktaki er Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar.

Hafir þú einhverjar spurningar eða ábendingar er bent á að hafa samband við Veitur í síma 516 6000  eða Akraneskaupstað í  síma 433 1000.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00