Fara í efni  

Frá plastskóflum að glæsilegum leikskóla - Garðasel 35 ára

Nýlega var því fagnað að 35 ár eru liðin frá því leikskólinn Garðasel var opnaður. Börn og starfsfólk í leikskólanum mættu í búningum eða náttfötum til að halda upp á daginn, haldin var sameiginleg söngstund í salnum og ball eftir það. Í tilefni dagsins var boðið upp á pizzu og afmælisköku.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá starfsmannahópinn, sem tók sig óneitanlega vel út í búningunum. 

Bylting á allri aðstöðu

Það er gaman að líta um öxl á slíkum tímamótum, en í grein sem birtist í Skagablaðinu árið 1990 og skrifuð var af leikskólakennurum á Akranesi kemur fram að hópurinn “líti björtum augum til byggingar nýs leikskóla við Lerkigrund”. Þá var reglan sú að börn komust almennt ekki inn í leikskóla fyrr en um þriggja ára aldur og yfir 100 börn eldri en 2 ára voru á biðlista eftir leikskólaplássi.

Í greininni er því einnig lýst að þáverandi aðstöðu í leikskólanum við Víðigerði sé mjög ábótavant, til dæmis sé sama herbergið nýtt sem snyrting barna og starfsfólks, rými fyrir skapandi starf í myndlist, leikherbergi og kaffihorn.

Fyrstu skóflustungurnar að leikskólanum við Lerkigrund, sem síðar fékk nafnið Garðasel, voru teknar af hópi ungra barna með litlar plastskóflur í nóvember árið 1989. Tveimur árum síðar var hann opnaður með pompi og prakt. Byggingin kostaði tæplega 60 milljónir króna og þótti hin glæsilegasta.

Nýr kafli hófst við Asparskóga

Í janúar árið 2023 hófst svo enn einn kaflinn í sögu Garðasels þegar leikskólinn flutti í nýtt og mun stærra húsnæði við Asparskóga. Nýi leikskólinn er sannarlega rós í hnappagat bæjarins og aðstaðan öll til fyrirmyndar. Aðrir leikskólar bæjarins hafa á þessum áratugum einnig tekið stakkaskiptum og í öllum þeirra fer fram mikið og gott starf þar sem fagmennskan er í fyrirrúmi.

Við óskum starfsfólki og börnum í Garðaseli fyrr og nú innilega til hamingju með afmælið og bendum í lokin á viðtal sem Skessuhorn tók nýverið við Ingunni Ríkharðsdóttur fyrrverandi leikskólastjóra um skólamál á Akranesi, en Ingunn er sannarlega í hópi þess frábæra starfsfólks sem hefur lyft þessu fyrsta skólastigi upp á hærra plan hér á Akranesi á undanförnum árum og áratugum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu