Fara í efni  

Flóahverfi - breyting á deiliskipulagi, auglýsing

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á 11. janúar 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingar felast m.a. í að A-hluta deiliskipulagsins er breytt þannig að í stað fleyglaga lóða og hringleiðar í miðju svæðisins kemur reglulegri lóðaskipan, umfang gatnakerfis minnkar. Skilmálar deiliskipulagsins er endurskoðað með það að markmiði að mæta þörfum iðngarða og fyrirtækjaklasa fyrir gott umhverfi sem styður við áherslur um samþættingu og sjálfbærni.

Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Dalbraut 4, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is frá og með 21. janúar til og með 8. mars 2022. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 8. mars 2022 í þjónustuver Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is

Sjá tillögu

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar .


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00