Fara í efni  

Fjölmiðlar og landsbyggðir - málstofa í streymi

Landshlutasamtök sveitarfélaga standa fyrir málstofu um fjölmiðla og landsbyggðir miðvikudaginn 12. maí kl. 9-10:30.

Fjallað verður meðal annars um vægi og birtingarmyndir íbúa á landsbyggðunum í frétta- og dagskrárefni, mikilvægi staðbundinna fjölmiðla, hlutverk og skyldur almannaþjónustumiðla gagnvart dreifðum byggðum og farið yfir dæmi frá Norðurlöndum.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Byggðastofnun, RÚV, Háskólann á Akureyri og mennta- og menningarmálaráðuneytið.

DAGSKRÁ:

Setning – Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra

Horft út um glugga borgarmúrsins – Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi og formaður stjórnar SSNE

Vandi staðbundinnar fjölmiðlunar – Birgir Guðmundsson dósent við fjölmiðlafræðideild Háskólans á Akureyri

Hvítu blettirnir í fjölmiðlun: Lærdómur frá Norðurlöndunum um stöðu staðbundinna miðla og hlutverk ríkisfjölmiðla – Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar

RÚV okkar allra – Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.

Pallborðsumræður

Málstofan verður haldin í menningarhúsinu Hofi en vegna sóttvarnareglna er ekki hægt að hafa viðburðinn opinn almenningi.

Fólk er hvatt til að fylgjast með á vefnum. Málstofunni verður streymt á Youtube og upptaka gerð aðgengileg að honum loknum.

SSV mun birta hlekk á fundinn þegar nær dregur.

 

Nánari upplýsingar er að finna hér á vef SSV


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00