Fara í efni  

Fjöliðjan leiðbeinandi - laust starf

Leiðbeinandi í Vinnu og virkni

Fjöliðjan á Akranesi óskar eftir leiðbeinanda til starfa í rúmlega 90 % stöðugildi til a.m.k eins árs.

Um er að ræða vinnustaði, þar sem fullorðið fatlað fólk er í vinnu og virkni.

Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn (Gentle teaching)

Vinnutíminn starfsins er kl: 09:00-16.00 virka daga vikunnar.

Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf strax.

Helstu verkefni og ábyrgð

Styður við og aðstoðar fatlaða starfsmenn í vinnu og virkni.

Fylgir eftir dagskipulagi og þjónustusamningum.

Sinnir stuðningi og tryggir að sjálfsákvörðunarréttur sé virtur og að veitt sé einstaklingsmiðuð þjónusta.

Menntunar- og hæfniskröfur

Þekkingar á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi hugmyndfræði er kostur.

Færni í samskiptum og samstarfi, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni er skilyrði.

Frumkvæði og metnaður í starfi ásamt færni og þekkingu á að leiðbeina öðrum.

Stundvísi og góð íslenskukunnátta.

Hreint sakavottorð

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um.

 

Sótt er um starfið inn á www.alfred.is

 

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Guðmundur Páll Jónsson forstöðumaður Fjöliðjunnar s: 433-1721 og í tölvupósti gpj@fjolidjan.is og

Ásta Pála Harðardóttir yfirþroskaþjálfi Fjöliðjunnar s: 433-1723 og í tölvupósti astapala@fjolidjan.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00