Fara í efni  

Fjallkona Akraness 2025 er Sigríður Eiríksdóttir

Ljósmynd eftir Daníel Þór Ágústsson hjá Blik studio.
Ljósmynd eftir Daníel Þór Ágústsson hjá Blik studio.

Hátíðahöld í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga fóru fram á Akranesi í dag.

Fjallkona Akraneskaupstaðar í ár er Sigríður Eiríksdóttir.

Sigríður fæddist í febrúar á lýðveldisárinu 1944, foreldrar Sigríðar voru Eiríkur Þorvaldsson og Guðrún Finnbogadóttir. Sigríður var gift Vigni Gísla Jóssyni og áttu þau saman einn son, þrjú barnabörn og þrjú barnabarnabörn. Sigríður gekk í Barnaskóla Akraness og í framhaldinu í gagnfræðaskóla Akraness og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Sem ung stúlka starfaði Sigríður meðal annars hjá Pósti og síma þar sem hún byrjaði að sendast með skeyti en einnig starfaði hún um tíma í Haraldarabúð. 18 ára fór Sigríður sem skiptinemi til Bandaríkjana og dvaldist þar í eitt ár, eftir heimkomu fór hún einn vetur í húsmæðraskóla í Sönderborg Danmörku. Árið 1970 stofnuðu Sigríður og Vignir Gísli Jónsson maðurinn hennar hrongavinnsluna Vigni G Jónsson ehf sem er enn starfrækt í dag. Sigríður hefur alla tíð tekið virkan þátt í félagsstörfum. Var frá unga aldri í Skátafélagi Akraness og er í dag í stjórn Svannaveitarinnar, sem er félagsskapur eldri skáta. Þá situr Sigríður í stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðistofnunar Vesturlands. Auk þess hefur hún tekið virkan þátt í starfi Feban félagi eldri borgara hér á Akranesi.

Sigríður las ljóðið Í Akrafjalli, eftir Inga Steinar Gunnlaugsson.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00