Finnar hrifnir af listnámi á Akranesi
Nýverið sótti hópur Finna Akranes heim í þeim tilgangi að sjá hvernig menntastofnanir og frístundastarf tengja listir við nám barna, en heimsóknin var hluti af svokölluðu SKAPA verkefni. Finnarnir voru frá bæjunum Kaskö, Korsnäs, Kristinestad, Malax og Närpes, en sá síðastnefndi er vinabær Akraness.
SKAPA verkefnið er á vegum sænska menningarsjóðsins og miðar að því að styrkja listmenntun fyrir börn og ungmenni á sænsku í Finnlandi. Markmiðið er að auka aðgengi og jafnrétti þar sem mörg börn skortir tækifæri til að taka þátt í listmenntun í frítíma sínum.
Það voru þær Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir verkefnastjóri farsæls frístundastarfs og Sólveig Sigurðardóttir deildarstjóri farsældarþjónustu barna sem leiðsögðu hópnum um bæinn, en meðal áfangastaða voru Þorpið, Brekkubæjarskóli, Tónlistarskóli Akraness og Grundaskóli.

“Þau fengu að skoða sig um og hitta okkar frábæra starfsfólk í stofnunum bæjarins,” segir Guðrún Þórbjörg. “Jón Hjörvar Valgarðsson tók á móti okkur í Þorpinu, Hjörvar Gunnarsson sagði frá tónlistarstarfinu í Brekkubæjarskóla, sýndi hópnum smíðastofurnar og fleira, Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri tónlistarskólans sagði frá starfinu þar auk þess sem við sáum söngatriði nemanda, Anna Leif Elídóttir og Sigurður Arnar Sigurðsson tóku á móti okkur í Grundaskóla þar sem við fengum að vita ýmislegt um list- og verknám þar auk Opna skólans og Angela Árnadóttir fór yfir listgreinakennslu í FVA.”
Guðrún segir að heimsóknin hafi verið afar vel heppnuð og Finnarnir hrifnir af bæði aðstöðu og kennsluaðferðum á Akranesi. “Þeir höfðu sérstaklega á orði að þeir hefðu ekki viljað snúa aftur heim til Finnlands án þess að koma hingað.”
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015