Fara í efni  

Lokið - Fimleikahús á Akranesi

Útboði er lokið.
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í byggingu á fimleikahúsi við íþróttahúsið að Vesturgötu 130. Skila skal verkinu fullbúnu að utan sem innan fyrir 12. júlí 2019.

Um er að ræða 1640 m² fimleikasal. Í salnum er steypt áhorfendastúka 170 m², og sturtuklefar og snyrtingar 65 m² sem staðsettir eru undir stúkunni. Í kjallara er tæknirými 200 m² og lóð umhverfis húsið 2200 m². Í eldri byggingu skal breyta búningsklefum 150 m², anddyri 25 m² og kennslurými á 2.hæð 360 m², auk nýsmíði á steyptum stiga og lyftustokk með lyftu milli allra hæða.

Verkið felst í niðurrifi, jarðvinnu, uppsteypu, stálvirki í þaki, þakeiningum, lögnum, loftræsingu, raflögnum, frágangi að innan og að utan, og lóðargerð. Fimleikabúnaður í salinn er ekki innifalinn. Breyta skal heimæðum fyrir hitaveitu og rafveitu og dreifilögnum á verksvæðinu fyrir Veitur.

Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmer tengiliðs.

Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð, fimmtudaginn 31. maí 2018 kl. 11:00.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00