Fara í efni  

Félagsráðgjafi - LAUST STARF

Velferðar- og mannréttindasvið auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starfshlutfall frá 1. janúar 2022.

Helstu verkefni

  • Félagsleg ráðgjöf, þjónusta og stuðningur við einstaklinga
  • Móttaka, skráning og könnun nýrra mála
  • skipuleggja úrræði, meðferðarvinna og eftirfylgni mála
  • Vinna með fjölskyldum og samstarfsaðilum vegna vinnslu mála
  • Þverfagleg teymisþátttaka

 

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf er skilyrði
  • Meistarapróf í félagsráðgjöf er kostur
  • Þekking og reynsla á sviði félagsþjónustu og barnaverndar
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, samstarfi og teymisvinnu
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð alhliða tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta (B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur

Athygli er vakin á því að starfið hentar öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 

Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk.
Sótt er um starfið í gegnum ALFREР

Nánari upplýsingar veitir Sveinborg Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri,

sveinborg@akranes.is og Ásta Jóna Ásmundsdóttir, félagsráðgjafi astajona@akranes.is eða í síma 433-1000.

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00