Fara í efni  

Endurreikningi afsláttar á fasteignaskatti lokið

Langisandur. Ljósmynd: Finnur Andrésson.
Langisandur. Ljósmynd: Finnur Andrésson.

Samkvæmt reglum Akraneskaupstaðar um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega, 3. grein, hefur endurreikningur afsláttar farið fram. Þeim elli- og örorkulífeyrisþegum sem breytingar á afslætti ná til, hefur verið sent bréf varðandi niðurstöðu. Breytingar hafa verið færðar til hækkunar/lækkunar á greiðsluseðla fasteignagjalda með gjalddaga 15. september og 15. október. Inneignir hafa verið millifærðar á bankareikning.

Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá starfsmönnum fjárreiðudeildar á bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18,  eða í síma 433 1000.

Athugið að breytingaseðlar eru einnig aðgengilegir á www.island.is undir ,,mínar síður".


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00