Endurbætt hafnaraðstaða skapar aukin tækifæri fyrir Akranes
Framkvæmdum Faxaflóahafna við Aðalhafnargarð á Akranesi er lokið. Með lengingu og endurbótum á hafnarbakkanum hefur aðstaða Akraneshafnar verið stórbætt og höfnin er nú betur í stakk búin til að þjónusta fiskiskip, skemmtiferðaskip og önnur stærri skip.
Framkvæmdin styrkir Akraneshöfn sem atvinnu- og þjónustuhöfn og skapar aukna möguleika fyrir fjölbreytta starfsemi til framtíðar. Bætt aðstaða getur stutt við sjávarútveg, þjónustu og annað atvinnulíf á Akranesi, auk þess að skapa ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu.
„Með framkvæmdinni höfum við aukið öryggi, bætt aðstöðu og skapað betri möguleika til að þjónusta fjölbreyttari og stærri skip en áður,” segir Inga Rut Hjaltadóttir sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna. “Þetta er langtímafjárfesting í innviðum Akraness sem styður við núverandi hafnarstarfsemi en opnar jafnframt á ný tækifæri og frekari uppbyggingu. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá endurbættan hafnarbakkann kominn í notkun og þær góðu viðtökur sem heimsóknir farþegaskipanna fengu í sumar.“
Fulltrúar Faxaflóahafna sóttu Akranes heim í gær til að fagna þessum áfanga. Á myndinni má sjá Líf Lárusdóttur formann bæjarráðs, Sturlaug Haraldsson bæjarstjóra, Gunnar Tryggvason hafnarstjóra Faxaflóahafna og Ingu Rut Hjaltadóttur sviðsstjóra framkvæmdasviðs Faxaflóahafna. Á neðri myndinni eru þau ásamt Pétri Þór Lárussyni hafnarverði og bæjarfulltrúm í bæjarstjórn Akraness.
„Lenging og endurbætur á Aðalhafnargarði eru mikilvæg viðbót við innviði Akraness og geta haft jákvæð áhrif langt út fyrir hafnarsvæðið,“ segir Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri Akraness. „Öflug höfn hefur lengi verið órjúfanlegur hluti af sögu og atvinnulífi bæjarins og bætt aðstaða skapar tækifæri til frekari uppbyggingar. Hún styrkir núverandi starfsemi, meðal annars þjónustu við sjávarútveg og fiskiskip og skapar jafnframt betri forsendur fyrir ný verkefni. Framkvæmdin getur þannig stuðlað að auknum umsvifum sem nýtast atvinnulífinu og samfélaginu öllu. Nú skiptir máli að Akraneskaupstaður, Faxaflóahafnir og atvinnulífið á svæðinu vinni saman að því að nýta þessi tækifæri vel.“

Gestir fá tækifæri til að kynnast Akranesi
Akranes og nágrenni hafa margt að bjóða gestum sem koma sjóleiðina. Þar má meðal annars nefna Langasand og Guðlaugu, vitasvæðið á Breið, Byggðasafnið í Görðum, Akranesvita, golfvöllinn og nálægðina við fjölbreyttar náttúru- og menningarperlur Vesturlands.
Ávinningurinn af endurbættri höfn kom þegar í ljós í sumar þegar leiðangursskipin Le Bellot og SH Vega urðu fyrstu skemmtiferðaskipin í fimm ár til að leggjast að bryggju á Akranesi. Le Bellot kom á þjóðhátíðardaginn 17. júní og aftur 18. júlí, en SH Vega heimsótti bæinn 14. ágúst. Komurnar sýna þau tækifæri sem felast í því að taka á móti fleiri ferðamönnum sjóleiðina á Akranesi og gera þeim kleift að kynnast bænum og náttúruperlum Vesturlands.
Komur farþegaskipa geta aukið umsvif hjá veitingastöðum, verslunum, ferðaþjónustufyrirtækjum og öðrum þjónustuaðilum. Uppbygging hafnarinnar skapar því ekki aðeins betri aðstöðu við höfnina sjálfa heldur einnig tækifæri fyrir fyrirtæki, frumkvöðla og samfélagið í heild.

Umfangsmikil endurnýjun Aðalhafnargarðs
Framkvæmdirnar hófust vorið 2023 eftir útboð þar sem verktakarnir Hagtak hf. og Þróttur ehf. voru með sameiginlegt tilboð. Hafnarbakkinn var lengdur um 100 metra og er heildarlengd hans nú 225 metrar.
Verkið fólst meðal annars í niðurrekstri á um 245 metra löngu stálþili, þar af um 125 metrum framan við eldri hafnarbakka Aðalhafnargarðs. Jafnframt var komið fyrir nýjum stagfestingum, akkerisplötum, kantbita, pollum og þybbum auk þess sem dýpkað var við innsiglinguna.
Hafnarsvæðið var endurnýjað með nýju yfirborði, lýsingu, rafmagns- og vatnsbúnaði, regnvatnslögnum og snjóbræðslu.
Í framkvæmdina var eingöngu keypt endurunnið stál, í samræmi við áherslur Faxaflóahafna í umhverfis- og loftslagsmálum.
Með verklokum hefur orðið til nútímalegri, öruggari og fjölhæfari hafnaraðstaða sem styrkir Akranes sem hafnarbæ og leggur grunn að frekari tækifærum til framtíðar.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember






