Fara í efni  

Dagur íslenskrar náttúru á Akranesi

Langisandur. Ljósmynd: Finnur Andrésson.
Langisandur. Ljósmynd: Finnur Andrésson.

Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru þann 16. september næstkomandi ætla Akraneskaupstaður og Landmælingar Íslands að taka höndum saman og bjóða til fræðslu- og örnefnagöngu.

Kl. 17:00 verður gengið frá aðalinngangi á Jaðarsbökkum meðfram Langasandi, út á Sólmundarhöfða og þaðan að Garðalundi, undir leiðsögn Guðna Hannessonar og Rannveigar L. Benediktsdóttur starfsmanna Landmælinga Íslands. Þau munu fræða gesti um örnefni á þessum slóðum.

Kl. 17:45 verður gengið um Garðalund undir leiðsögn Jóns Guðmundssonar garðyrkjufræðings og Sindra Birgissonar skipulagsfræðings. Garðalundur hefur verið vinsælt útivistarsvæði Akurnesinga um árabil en hefur gengið í gegnum miklar breytingar undanfarin ár.

Allir hjartanlega velkomnir, klæðnaður eftir veðri. 

 Neðangreind mynd sýnir gönguleiðina frá Jaðarsbökkum í Garðalund.  

Gönguleið


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00