Fara í efni  

Dalbraut 4 - heitur matur í hádegi

Boðið er upp á heitan mat frá Höfða fyrir eldri borgara, í hádegi að Dalbraut 4.

Hádegisverðurinn stendur frá kl. 11.30-12.30. Hver máltíð kostar 1.172 krónur

Nauðsynlegt er fyrir alla þá sem skrá sig að panta fastar máltíðir til að hægt sé að skipuleggja fjöldann í hvert sinn. Einnig er nauðsynlegt að afpanta ef fólk sér ekki fram á að geta mætt þá daga sem pantað er. Ef fólk afpantar ekki þá þarf að innheimta kostnað fyrir matinn. 

Skráning fer fram í síma 433-1000. Pantanir fyrir vikuna 27. mars – 31. mars verða að berast fyrir kl. 15:00, miðvikudaginn 22. mars.

Matseðill hverrar viku verður sýnilegur á staðnum. Einnig er hægt er að nálgast matseðilinn á www.dvalarheimili.is

 Athugið að matseðillinn getur breyst án fyrirvara.

                                       Fyrir þessa viku þarf að vera búið að panta fyrir kl. 15.00 miðvikudaginn 22. mars.         

                               

   Fólk skráir sig við mætingu og innheimta fer fram í lok hvers mánaðar. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

                                                                   


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00