Fara í efni  

Covid-19 smit sem kom upp á æfingu í íþróttahúsi á Vesturgötu 28.10.2020

Um leið og upplýsingar bárust um smit var virkjuð aðgerðarstjórn samkvæmt leiðbeiningum frá Almannavörnum með fulltrúum Íþróttabandalagsins ÍA og Akraneskaupstað.

Smitrakning hefur farið fram og foreldrar viðkomandi hópa voru strax upplýstir ef barnið þurfti að fara í sóttkví, allt unnið skv. leiðbeiningum frá Almannavörnum. Allt utanumhald og upplýsingagjöf til þeirra sem málið varðar er á höndum smitrakningateymis Almannavarna.

Hreinsun hefur farið fram á húsnæðinu samkvæmt reglum.

Ákvarðanir um það hverjir fara í sóttkví er alfarið á höndum smitrakningarteymis Almannavarna og viðkomandi aðilar eru að sjálfsögðu upplýstir þegar þess þarf.

Yfirmenn innan okkar stofnanna miðla almennum upplýsingum til foreldra eftir því sem við á.

Aðgerðastjórn þessa verkefnis þakkar foreldrum og fulltrúum íþróttafélagsins fyrir snerpu og samvinnu sem var forsenda þess hve vel tókst til að koma skilaboðum til foreldra þeirra barna sem málið varðaði.

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00