Við kynnum nýtt app fyrir íbúa á Akranesi!
Akranes-appið er bæði einfalt og aðgengilegt. Það veitir aðgang að nýjustu fréttum, geymir rafrænt klippikort fyrir losun á úrgangi í Gámu, sýnir yfirlit yfir viðburði í bænum og býður íbúum að fá áríðandi tilkynningar beint í símann, t.d. varðandi götulokanir og veðurviðvaranir.
Íbúaappið er aðgengilegt fyrir síma með bæði Apple og Android stýrikerfi. iPhone notendur finna appið með því að slá inn “Akranes” í App Store, og Android notendur í Play Store.
Það er von okkar að nýja Akranes-appið muni reynast íbúum vel og við hvetjum þá eindregið til að ná sér í það. Tilgangur þess er fyrst og fremst að einfalda samskipti við íbúa og nútímavæða þjónustu kaupstaðarins.
Rafræna klippikortið í Gámu er nýjung og tekur við af núverandi fyrirkomulagi. Í stað þess að íbúar greiði fyrir losun sína á gjaldskyldum úrgangi í Gámu fá allir eigendur íbúðarhúsnæðis á Akranesi nú klippikort í appinu sem notað er til greiðslu. Í Gámu er öll losun á úrgangi skráð sem Akraneskaupstaður greiðir fyrir mánaðarlega í stað þess að íbúar greiði á staðnum. Kostnaðurinn er svo innheimtur í gegnum sorpgjöld á fasteignaeigendur.
Eigandi hverrar íbúðar fær 12 klipp árlega, en hvert klipp jafngildir greiðslu fyrir losun á 0,25 m³ einingu af gjaldskyldum heimilisúrgangi, í öllum gjaldskyldum flokkum. Ekki er tekið klipp fyrir gjaldfrjálsa úrgangsflokka eins og þeir eru skilgreindir í gjaldskrá Gámu.
Hér fyrir neðan má sjá spurningar og svör varðandi notkun klippikortsins í appinu.

Spurt og svarað um rafrænt klippikort
Hvar nálgast ég nýja klippikortið?
Rafræna klippikortið er að finna í nýja Akranes-appinu sem þú þarft að setja upp í símanum þínum. Þú einfaldlega ferð inn í App Store eða Google Play í símanum þínum, slærð inn Akranes, hleður appinu niður, velur "gámakort" neðst í vinstra horninu og skráir þig inn með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappinu. Eftir það velurðu "sækja inneign". Rafræna klippikortið í Gámu birtist þá inni í appinu hjá þeim sem eiga tilkall til inneignar.
Hvernig nota ég kortið í Gámu?
Mikilvægt er að íbúar sæki bæði appið og inneignina sína áður en haldið er af stað í Gámu. Þar leggja starfsmenn mat á rúmmál og flokkun úrgangs eins og áður. Þeir segja svo notanda hversu mörg klipp þarf að greiða fyrir losunina (hvert klipp jafngildir greiðslu fyrir losun á 0,25 m³ einingu af gjaldskyldum heimilisúrgangi). Þá sýnir notandi starfsmanni þegar þessi fjöldi klippa er valinn í appinu, ýtir á greiða og sýnir starfsmanni staðfestingu sem birtist á skjánum.
Hægt er að sjá yfirlit yfir alla notkun á klippum í appinu.
Hvað gerist ef ég klára inneignina?
Íbúum á Akranesi býðst að kaupa áfyllingu á kortið í appinu. Gjaldið er samkvæmt gjaldskrá hverju sinni og má sjá í appinu. Nýtt klippikort birtist samstundis og í framhaldinu berst greiðsluseðill í heimabanka.
Hvað ef ég er ekki skráður eigandi húsnæðisins sem ég bý í?
Appið býður upp á þann möguleika að gefa inneign á rafræna klippikortinu áfram til annarra. Sá sem er skráður eigandi íbúðarinnar þarf að fara inn í appið, velja “gefa inneign” og setja inn kennitölu þess sem býr í húsnæðinu. Þetta á einnig við þegar lögaðili er skráður eigandi fasteignarinnar, til dæmis leigufélag.
Athugið að viðtakandi þarf að hafa skráð sig inn í appið til að hægt sé að færa inneign yfir á hann.
Þeir sem eru í félagslegu húsnæði á vegum Akraneskaupstaðar ná í appið og senda svo póst á velferd@akranes.is með heimilisfangi sínu og kennitölu til að fá sín kort.
Lendi fólk í vandræðum er hægt að senda póst á akranes@akranes.is.
Hvað gerist þegar fleiri en einn er skráður fyrir íbúð?
Þegar fleiri en einn er skráður fyrir sömu íbúð (til dæmis hjón eða fólk í sambúð) fær sá sem fyrr sækir úthlutuð klippin þau öll í sitt app. Í framhaldinu þarf viðkomandi að deila klippum á aðrar kennitölur.
Athugið að viðtakandi þarf einnig að hafa skráð sig inn í appið til að hægt sé að færa inneign yfir á hann.
Hvað gerist ef ég klára ekki inneignina fyrir áramót?
Ónotuð klipp falla niður um áramót. Þó ekki þau sem hafa verið keypt aukalega.
En ef ég er ekki með snjallsíma?
Í undantekningartilfellum verður hægt að fá klippikort á pappír í þjónustuveri bæjarins, Dalbraut 4. Nauðsynlegt er að hafa skilríki meðferðis.
Við hvetjum íbúa þó eindregið til að nýta sér appið. Það er bæði einfalt og þægilegt auk þess sem engar líkur eru á að klippikortið týnist eða skemmist.
Glatist pappírskort eða skemmist þarf eigandi þess að kaupa nýtt kort.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





