Tryggja á vatnsöryggi á Akranesi til framtíðar
Vatnsgæði á Akranesi uppfylla í dag allar kröfur um hreinleika og eru undir reglulegu eftirliti Veitna og Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Til lengri tíma hafa Veitur áhyggjur af vatnsöflun og skoða því nýja valkosti, meðal annars mögulega tengingu við vatnsveitu á Kjalarnesi. Þetta kemur fram í grein sem rituð er af Brynju Ragnarsdóttur forstöðukonu Vatnsmiðla hjá Veitum og birtist á vef Skessuhorns í gær.
Í greininni kemur einnig fram að álag á vatnsveituna í vetur hafi verið tímabundið og stafað af óvenju þurru veðri samhliða mikilli notkun, meðal annars vegna loðnuvinnslu. Gripið var til aðgerða í samvinnu við stofnanir, fyrirtæki og íbúa til að tryggja afhendingaröryggi.
Fram undan eru umtalsverðar fjárfestingar í vatnsveitu Akraness, meðal annars til að styrkja innviði, auka fjölbreytni vatnsauðlinda og tryggja örugga og sjálfbæra vatnsafhendingu til heimila og atvinnulífs til framtíðar. Heildarfjárfestingaráætlun Veitna fyrir Akranes nemur í dag um 7,7 milljörðum króna næstu fimm árin fyrir alla miðla. Þar af er áætlað að um 2,2 milljörðum króna verði varið í verkefni tengd vatnsveitunni á Akranesi. Þau verkefni sem nú eru í undirbúningi munu hækka þá fjárhæð verulega á komandi árum.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015