Fara í efni  

Þúsund með appið og lengdur opnunartími í Gámu í kvöld

Um eitt þúsund Skagamenn hafa náð í nýja Akranes-appið  á síðustu tveimur dögum og við þökkum góðar viðtökur.

Starfsfólki Gámu hefur gengið vel að taka á móti þeim sem þangað hafa lagt leið sína með nýja rafræna klippikortið sem er að finna í appinu. Við ítrekum að mikilvægt er að þeir sem leggja þangað leið sína séu búnir að ná í appið og sækja inneign sína áður en þeir koma. Þeir sem lenda í vandræðum með að sækja inneign geta sent póst á akranes@akranes.is.

Rétt er að benda á að alla fimmtudaga er lengdur opnunartími í Gámu, en þá er þar opið til kl. 20 á kvöldin. Þessum lengda opnunartíma er ætlað að koma til móts við þá sem vinna vaktavinnu og/eða vinna utan Akraness og eiga erfitt með að nýta þjónustuna á öðrum tímum.

Við viljum nýta tækifærið og hvetja þá sem eiga eftir að ná í appið að gera það. Í því er til dæmis að finna nýjustu fréttir er varða bæjarmálin, tilkynningar og yfirlit yfir viðburði. Eins viljum við hvetja þá sem standa fyrir viðburðum á Akranesi að skrá þá inni á akranes.is. Viðburðirnir birtast þá sjálfkrafa á bæði heimasíðunni og í appinu.

Nánari upplýsingar um nýja appið og svör við helstu spurningum um rafræna klippikortið er að finna hér. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu