Þrjár hönnunarstofur komi með tillögur að framtíð Ægisbrautar
Ægisbraut verður í framtíðinni íbúðarbyggð og í næsta nágrenni bæði leikskóli og opið svæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð hefur nú samþykkt að þrjár hönnunarstofur verði fengnar til að koma með tillögur að hönnun svæðisins.
Um er að ræða svæðið sem merkt er með bláu á meðfylgjandi mynd. Markmiðið er að unnin verði frumhönnun þar sem áhersla verður lögð á aðgengi, náttúru, íbúðaruppbyggingu og leikskóla, en ætlunin er að hann verði staðsettur á lóðinni við Vesturgötu 119, gegnt Brekkubæjarskóla.
Stofurnar munu fá sex vikur til að vinna verkið. Tillögurnar verða ekki bindandi framkvæmda- eða hönnunargögn heldur eru þær hugsaðar til að skapa heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið, kanna mismunandi nálganir í skipulagi og uppbyggingu og leggja faglegt mat á möguleika og áskoranir svæðisins. Þá er sérstök áhersla lögð á að skoða uppbyggingu nýrrar íbúðarbyggðar, sjóvarnir, leik- og grunnskóla og tengsl við núverandi byggð.
Í verkefnalýsingu segir að tillögur megi vera framsæknar að því gefnu að þær séu rökstuddar, raunhæfar og í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og staðaranda svæðisins.
Áætlað er að kynna þær tillögur sem berast á íbúafundi í vor.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015