Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2601-1068 : Úttekt á Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar 31.10.2025 Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveita óskar eftir að samstarfsnefnd sveitarfélaganna um Slökkviliðið komi saman til umfjöllunar og úrvinnslu erindis frá HMS og í kjölfarið verði drög að svari til HMS send inn til sveitarstjórnar til afgreiðslu. Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri, situr fundinn undir þessum lið. Skipulags- og umhverfisráð felur sviðsstjóra og slökkviliðsstjóra að koma með tillögu til úrbóta á húsnæðismálum slökkviliðsins og leggi fram kostnaðaráætlun .Jens Heiðar Ragnarsson víkur af fundi.
|
|
2. 2601-0074 : Kirkjubraut 4-6 umsókn til skipulagsfulltrúa Umsókn um deiliskipulagsbreytingu á Akratorgsreit, í breytingunni felst að færa lóðarmörk Kirkjubrautar 4-6 og Suðurgötu 67 um 4m frá húsvegg Kirkjubraut 4-6 lóðin fer úr 681,9 fm í 711,4 fm, einning verður komið fyrir gluggum á jarðhæð í átt að Suðurgötu 67. Heimilt verður að hafa gistiheimili fyrir 12 herbergi í flokki 2 með aðkomu frá Suðurgötu, frá Kirkjubraut verður að skrifstofu og verslunarhúsnæði. Grenndarkynnt var í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012, frá 21. janúar til 22. febrúar fyrir Kirkjubraut 1,2,3,5,6 og Suðurgötu 65,67,68,70,71,72. Ein athugasemd barst fyrir hönd 5 lóðarhafa. Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að móta svar við framkomnum athugasemdum fyrir næsta fund ráðsins.
|
|
3. 2602-1595 : Bárugata 15 - Umsókn til skipulagsfulltrúa Til Skipulags- og umhverfisráðs hefur borist beiðni, dags. 16. febrúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi fyrir Bárugötu 15. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja allt að 8 íbúðir á fjórum hæðum. Umsækjandi óskar eftir að lækka bygginguna úr 4 hæðum í 2 hæðir, en gera áfram ráð fyrir allt að 7 íbúðum innan hússins og atvinnustarfsemi á 1. hæð. Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu málsins.
|
|
4. 2512-5159 : Endurskoðun Deiliskipulag Ægisbrautar - Undirbúningur Verkefnalýsing fyrir endurskoðun á skipulagi Ægisbrautar lögð fram. Markmið hugmyndaleitar er að fá fram heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið fyrir uppbyggingu íbúðarbyggðar og leikskóla á svæðinu í takt við núgildandi aðalskipulag Akraness. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að þrjár hönnunarstofur verði fengnar til að koma með tillögur að hönnun Ægisbrautar, en samkvæmt gildandi aðalskipulagi verður þar í framtíðinni íbúðarbyggð, leikskóli og opið svæði.Markmiðið er að unnin verði frumhönnun þar sem áhersla verður lögð á aðgengi, náttúru, íbúðaruppbyggingu og 8-10 deilda leikskóla, en ætlunin er að hann verði staðsettur á lóðinni við Vesturgötu 119, gegnt Brekkubæjarskóla.Stofurnar munu fá sex vikur til að vinna verkið. Tillögurnar verða ekki bindandi framkvæmda- eða hönnunargögn heldur eru þær hugsaðar til að skapa heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið, kanna mismunandi nálganir í skipulagi og uppbyggingu og leggja faglegt mat á möguleika og áskoranir svæðisins. Þá er sérstök áhersla lögð á að skoða uppbyggingu nýrrar íbúðarbyggðar, sjóvarnir, leik- og grunnskóla og tengsl við núverandi byggð.Í verkefnalýsingu segir að tillögur megi vera framsæknar að því gefnu að þær séu rökstuddar, raunhæfar og í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og staðaranda svæðisins.Áætlað er að kynna þær tillögur sem berast á íbúafundi í vor.
|
|
5. 2602-1828 : Sementsreitur Deiliskipulag Reitir A og B Breyting á deiliskipulagi sementsreit sem felst í að heimilt verður að hækka mæni húsa á skipulagsreitum A og B og auka þar með sveigjanleika í hönnun. Samanlögð hæð þakhæðar og aðalhæðar var 7,1 meter en verður 8,0 meter. Samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti dagsett 17.02.2026. Annað er óbreytt. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að breytingin verði grenndarkynnt í samræmi við mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 fyrir lóðarhöfum Jaðarsbraut 3,5,7,9,11,13,15,17,19,21,23. Sementsbraut 12,15.
|
|
6. 2601-0660 : Merkjalýsing og Mæliblöð Grundir
Fyrir liggur að endurnýja lóðarleigusamning fyrir lóðir í Grundarhverfi, þ.e.a.s við: Grenigrund (1-48), Furugrund (1-46), Bjarkagrund (2,16,17,18,31,32,33,34,38A, Reynigrund (1-47) og Víðigrund ( 1-22) . Í samræmi við kröfur um frágang nýrra lóðarleigusamninga skulu þeim fylgja hnitsett mæliblöð ásamt merkjalýsingu. Af þeim sökum hafa allar lóðir í Grundarhverfinu verið mældar upp að nýju og gerður hnitsetttur uppdráttur.. Fyrirhugað er að senda íbúum í Grundahverfi hnitsettan lóðauppdrátt til kynnigar þar sem þeim verður gefin kostur að komað ábendingar. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir ofangreinda málsmeðferð, erindið verði kynnt lóðarhöfum Grundarhverfis og þeim gefin tveggja vikna frestur til að koma með ábendingar. Lóðarhafar munu fá tilkynningu í pósthólf sitt á island.is.
|
|
7. 2602-1314 - Vinnuskóli - tillögur til vinnuhóps í kjölfar samantektar á störfum og stöðu vinnuskólans 2025 Umræða um tillögur vinnuhóps að breytingum á Vinnuskóla Akraness. Jón Arnar Sverrisson, garðyrkjustjóri, situr fundinn undir þessum lið. Garðyrkjustjóri kynnti tillögur að fyrirkomulagi vinnuskólans fyrir sumarið 2026.
|
|
11. 2601-0560 : Bygging fyrir talningarvél Lagt er fyrir minnisblað Trivium vegna hljóðvistar Glerbrotsvélar og flokkunarvélar við skipulagða íbúðabyggð. Umhverfis- og skipulagsráð vísar málinu áfram til nánari úrvinnslu.
|
|
12. 2602-1622 : Akraneshöll Viðhald þaks lausn Proseal Lagt er fyrir kostnaðaráætlun um viðhald á klæðningu Akraneshallar með tillögu frá Proseal. Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að afla frekari gagna.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





